Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Bjartur Snær,
Bjartur Snær,

Við erum hress og kát hér í sveitinni. Bjartur að verða 8 ára, Magni að verða 6 ára og byrjar í skólanum í haust og Haukur Ingi 8 mánaða.

Hér gengur allt sinn vanagang, Jón vinnur í reykjavík einsog er þannig að strákarnir eru með mömmu sinni alla vikuna svo kemur pabbinn heim um helgar og þá eru þær vel nýttar og alltaf gert eitthvað skemmtilegt.

Strákarnir eru svo duglegir í íþróttum og þá sérstaklega Bjartur Snær sem æfir körfubolta, fimleika, fótbolta og frjálsar auk íþróttanna og sunds í skólanum.

Hann á einmitt afmæli eftir 10 daga óskalistinn hljómar svona... alvöru hjólabretti, brettaskó, golfsett, fótboltamörk og nýja takkaskó:) allt á tæru!

Magni er orðinn mjög spenntur að byrja í skólanum. Hann er farinn að fara í skólaheimsóknir að skoða skólann og hitta kennara og skólastjórann. Hann er alveg með á tæru hvernig skólatösku hann vill:) Magni Fannar er mjööög duglegur að borða eiginlega of duglegur. það líða ekki 15 mínútur að milli snarla hjá honum en hann fitnar ekkert bara lengist. Það verður fróðlegt að sjá hvar hann endar í hæð:)

Haukur Ingi er 8 mánaða og hann veit nákvæmlega hvað hann vill. Hann þeytist um í göngugrindinni sinni og harð neitar að liggja á gólfinu. Hann laumar sér allsstaðar sem hann má ekki fara ( mamman biður til Guðs um að fá í lottóinu svo hún geti keypt innihurðar svo að íbúðin hætti að líta út einsog eftir sprengjuárás ) skrifstofan er vinsælust því þar eru svo mörg blöð til að rífa og tæta útum allt. Svo finnst honum æði að vera inni í eldhúsi því þar getur hann tekið allar tuskurnar úr skúffunni og opnað ofninn og stillt eldavélina! Hann er orðin rúm 10 kíló en við eigum að fara í skoðun 13. mars.

Annars er allt gott að frétta hér og við bíðum bara spennt eftir sumrinu sem er á næsta leyti...þangað til næst

bless bless

0 | 22.2.2012 22:24:15 #

jól 2011 + jan.feb 2012

1 | 1 | 22.2.2012 20:50:50 #
  • Halló halló gaman að sjá myndir :) Æðislega fallegur litli stubbur og held ég að það verði gaman hjá þeim bræðrunum.
    Guðný og Kormákur
    |
    13.7.2011 09:01:30
  • Ohh hann er bara sætur þessi nýi prins eins og hinir prinsarnir ykkar:O) Til hamingju enn og aftur
    Dúna
    |
    12.7.2011 22:13:58

nýju gaurinn mættur á svæðið:)

0 | 0 | 12.7.2011 21:41:06 #
Hæj flott síða og gaman að sjá nýjar myndir af ykkur :)
Ninna | 0 | 5.3.2011 17:17:49 #
Hi strakar minir, tid erud alveg abiggilega alveg hissa ad loksins fa faeinar linur fra fraenku,tid hafid nu aldeilis staekkad ,mer fins alveg draumur i dos ad fa mindir af ikkur og mommu og pabba,hundinum lika eda hann er nu ekki litill lengur, eins og tid,tid badir havad nu aldeilis ,staekkad,eg er sistir hennar ommu ikkar,og hun hevur komid oft ad heimsaekja mig, ja hun amma ester ikkar,vid tolum saman i siman tad finnst mmer gaman ad gera,jaea asta strakarnir minir, eg bid innilega ad heilsa ollum, og herna eru kossar firir ikkur++++++++ svo bara segi eg, verid tid blessadir elskurnar minir, og alex fraendi bidur ad heilsa ollum lika, og til mommu og pabba til hamingju med nija litla kruttid, gud blessi ikkur, bless, Elsa fraenka
gudrun Elsa | 0 | 21.2.2011 01:25:19 #
Hann afi er heppnasti kall í heimi, hann á flottustu og flinkustu afastrákana sem til eru í heiminum, og hann elskar þá líka alveg út af lífinu. 100000000000000000 kossar til ykkar og pabba og mömmu duglegu sem er alltaf að gera eitthvað fyrir ykkur strákana 3 (Jón líka).
AFi Gummi | 0 | 21.1.2011 11:01:36 #

Janúar 2010

Komið þið blessuð og sæl aftur eftir laaangt hléSmile

 

Við höfum ákveðið að byrja aftur með síðuna þar sem að við eigum svo mikið af ættingjum og vinum útum allt sem geta lítið fylgst með okkur en geta þó allvega gert smá af því hér:)

Við erum búnir að stækka mikið síðan síðast og höfum alltaf nóg að gera.

Bjartur Snær er byrjaður í 1. bekk og gengur það bara frábærlega vel.Hann til dæmis eeeelskar langa skóladaga:)

Hann á fullt af góðum vinum og æfir íþróttir af miklum krafti. Hann er í fimleikum, körfubolta og fótbolta og finnst það rosalega skemmtilegt.

 

Magni Fannar er orðinn 4 áraog er á leikskólanum Undralandi og er þar á deild sem að heitir Heiðarkot.Þar brallar hann margt skemmtilegt með sínum bestu vinum. Hann lengist endalaust og getur borðað á við 3 fullorðna held ég bara allavega borðar hann meira en við hin þrjú!

Hann æfir líka fimleika og er svo í íþróttaskóla líka sem hann eeeeelskar!

Annars er ekkert mikið að frétta af okkur sem við munum eftir en við ætlum að uppfæra síðuna mánaðarlega þannig að kannski verður eitthvað meira að frétta næst:)

 

Bestu kveðjur úr SuðurhofiSmile

0 | 20.1.2011 23:31:11 #

Jól og áramót 2010

0 | 0 | 20.1.2011 22:51:36 #

Vetur 2009 jól ofl.

0 | 0 | 22.2.2010 15:06:08 #
Hæ flottustu strákarnir mínir nú verður afi að fara að koma í heimsókn, Afa finnst svo svakalega langt síðan þið gistuð hjá afa og þá var nú gaman. guð veri með ykkur og pabba og mömmu líka, og sjáumst fljótt. 1000000000000 kossar til ykkar allra.
Afi Gummi | 0 | 23.1.2010 13:06:11 #
  • Hæ hæ skemmtilegar fjörumyndirnar ykkar :o) Það væri nú gaman að geta hitt ykkur eitthvað um jólin :o) kærar kveðjur til mömmu og pabba
    Guðrún Edda og gormar
    |
    26.11.2009 12:49:11
  • Hæ stóru strákarnir hans afa, nú fer að styttast að afi nái í ykkur og við förum saman í leikhúsið hennar Krissu að sjá Kardimomubæinn og svo að sofa eina nótt hjá afa og Krissu, mikið hlakkar afi til að fá ykkur, kissið þið mömmu og pabba rembings kossa frá mér, bless bless þangað til næst. Afi Gummi
    Afi Gummi
    |
    12.11.2009 15:13:54

Fjöruferð

0 | 0 | 27.10.2009 21:35:13 #
  • Skemmtilegar myndir hjá ykkur bræðrum. Takk kærlega fyrir lánið á hjólinu á meðan við vorum á Íslandi. Kveðja frá Norge, Guðrún Edda og fylgifiskar:o)
    Guðrún Edda
    |
    28.9.2009 08:10:19
  • hæ hæ strákar takk fyrir kökunar og afmælið seinast flottar myndir sjáumst vonandi hress næst og til hamingju með 3 ára afmælið Magni ;) kveðja Ninna frænka
    Ninna Ýr frænka
    |
    1.9.2009 20:51:56
  • Til hamingju með afmælið Magni Fannar:) vonandi ertu búinn að eiga góðann dag:) kv. Fríður og Ragnheiður
    Fríður og Ragnheiður
    |
    30.7.2009 19:07:49
  • Innilega til hamingju með afmælið Magni minn þann 30-tugasta. Takk fyrir terturnar og allt. Flottar myndir af ykkur. Sjáumst snúllarnir mínir. Kv. amma Nína
    Jónína amma
    |
    27.7.2009 23:49:16

Sumarið 2009

0 | 0 | 27.7.2009 20:45:53 #