Við erum hress og kát hér í sveitinni. Bjartur að verða 8 ára, Magni að verða 6 ára og byrjar í skólanum í haust og Haukur Ingi 8 mánaða.
Hér gengur allt sinn vanagang, Jón vinnur í reykjavík einsog er þannig að strákarnir eru með mömmu sinni alla vikuna svo kemur pabbinn heim um helgar og þá eru þær vel nýttar og alltaf gert eitthvað skemmtilegt.
Strákarnir eru svo duglegir í íþróttum og þá sérstaklega Bjartur Snær sem æfir körfubolta, fimleika, fótbolta og frjálsar auk íþróttanna og sunds í skólanum.
Hann á einmitt afmæli eftir 10 daga óskalistinn hljómar svona... alvöru hjólabretti, brettaskó, golfsett, fótboltamörk og nýja takkaskó:) allt á tæru!
Magni er orðinn mjög spenntur að byrja í skólanum. Hann er farinn að fara í skólaheimsóknir að skoða skólann og hitta kennara og skólastjórann. Hann er alveg með á tæru hvernig skólatösku hann vill:) Magni Fannar er mjööög duglegur að borða eiginlega of duglegur. það líða ekki 15 mínútur að milli snarla hjá honum en hann fitnar ekkert bara lengist. Það verður fróðlegt að sjá hvar hann endar í hæð:)
Haukur Ingi er 8 mánaða og hann veit nákvæmlega hvað hann vill. Hann þeytist um í göngugrindinni sinni og harð neitar að liggja á gólfinu. Hann laumar sér allsstaðar sem hann má ekki fara ( mamman biður til Guðs um að fá í lottóinu svo hún geti keypt innihurðar svo að íbúðin hætti að líta út einsog eftir sprengjuárás ) skrifstofan er vinsælust því þar eru svo mörg blöð til að rífa og tæta útum allt. Svo finnst honum æði að vera inni í eldhúsi því þar getur hann tekið allar tuskurnar úr skúffunni og opnað ofninn og stillt eldavélina! Hann er orðin rúm 10 kíló en við eigum að fara í skoðun 13. mars.
Annars er allt gott að frétta hér og við bíðum bara spennt eftir sumrinu sem er á næsta leyti...þangað til næst
bless bless





